Nýtt vopn í baráttunni gegn hryðjuverkum



Leiðinlegt fólk er ljótt

Já það er hverju orði sannara en það er þó þannig að stundum dugar hressleikinn ekki einn til. Við erum misjafnlega af skapara okkar gerð og gengur misvel að verjast stöðugum árásum Elli kerlingar sem hefur jafnvel  meira hugarflug í sínum skæruhernaði gegn okkur en Alkaida eða alkaline eða hvað þeir heita þessir arabar sem ekki geta unað lýðræðisframþróuninni í austurlöndum. Hrukkur, hárlos, húðlitur dofnar, keppir birtast þar sem áður var stinnt hold, lifrarblettir. Þetta er bara hluti af vopnabúri þessa hryðjuverkamanns sem er Elli kerling. En auðvitað höfum við lýst yfir stríði gegn hennar hryðjuverkum , líst yfir stríði gegn þeim ótta sem fylgir því að vita að við erum hvergi óhult fyrir skæruárásum hennar. Það stríð hófs fyrir löngu, löngu áður en alkaline gaurarnir réðust á turnanna tvo.

 Von um betri vopn

Það er því með mikilli ánægju sem Sokkabandið getur kynnt enn eina nýjung í vopnabúri okkar. Margir hafa heyrt orðróm um þessa viðbót en ekki fengið staðfestingu fyrir tilvist þessa leynivopns.  Í myndbandinu hér að ofan er fjallað um endaþarmsaflitun. Hversu hvimleitt er það að þurfa að horfa upp á endaþarm sinn dökkna með árunum og þannig glata sínu upphaflega aðdráttarafli. En það er von og vegur þar sem fegurðarsérfræðingar hafa hannað þessa meðferð sem gerir þér kleift að yngja upp á þér þarminn. Hver vill ekki verða stoltur á ný og bera þarm sinn með stolti já ekki lengur súkkulaði heldur....vanilla

Sokkabandið

og hér og  Hér

má finna frekari upplýsingar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband