Færsluflokkur: Dægurmál

Gunni Helga, Eva María, Krummi og svo Ólafur Eff ?

Gunni Helga

Eva MaríaKrummi  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 
Skrítin tík og baktjöld  með smá makki
Til hamingju Reykjavík því Ólafur F er hér. Já nýr borgarstjóri er tekin við Villti tryllti Villi hefur sannað og sýnt að spakmæli fyrrum handboltalandsliðsþjálfara " sá vinnur sem er mesti refurinn" er hverju orði sannara. Pólitíkin er svolítið eins og Lúkas. Maður heldur að hún sé daunill og óspennandi, líflaus og svo bara hókus pókus .... nýr borgarstjóri rís upp hress og lúkkar næstum því eins og gaurinn í CSI, þessi með gráa hárið.  En þessi skriðtækling Ólafs Eff og Villa Góða hefur víðtækari áhrif en bara í ráðhúsinu þar sem menn, þó að það sé líklegra að það sé kona og eflaust á vegum starfsmannaleigu,eru önnum kafnir við að hreinsa burt öll ummerki um 103 daga Burgmeister tíð Dags B. Já kasti maður steinvölu í tjörnina þá gárar víða.

 Dagur að kveldi kominn..
Við í Sokkabandinu höfum fengið liðstyrk frá frægasta fólki Íslands á litla sviðinu í Borgó. Þar hafa celeb landsins hjálpað okkur að gera lífið skemmtilegra með því að taka þátt í leynigestleik. Nú síðast var það Gunnar Helgason orkubolti og uppáhaldsleikari Sokkabandsins. Takk Gunni fyrir innlitið og hjálpina. Þar á undan var Eva María gestur okkar og er óhætt að segja að hún hafi borið höfuð og herðar yfir kynsystur sínar sem komið hafa til okkar í heimsókn. Enda er hún aðlaðandi og geislandi greind, takk Eva þú ert frábær. Ekki má gleyma Krumma í mínus sem kom sá og rokkaði feitt. Nú þegar ljóst er að sýningum fer fækkandi, fækkar einnig tækifærum til þess að fá fræga í heimsókn. Hinn nýi nú gamli borgarstjóri Dagur B hafði verið mjög hátt á lista yfir þá sem okkur þóttu eftirsóknarverðir. Og nú má upplýsa að Sokkabandið hefur staðið í miklum samningaviðræðum og þreifingum með það fyrir augum að fá hinn nýja nú gamla borgarstjóra Dag B til þess að koma til okkar.  En þá kastar Ólafur F grjóti í tjörnina. Það eru náttúrulega óskrifaðar reglur celeb-heimsins að maður getur ekki boðið einhverjum sem er fyrrverandi eitthvað. Sokkabandið er sorgmætt því Dagur er bæði myndarlegur og hress. Með hjálp nýjustu tölvutækni var okkur kleift að setja saman mynd sem af framtíðinni  hefði  orðið ef ekki fyrir grjótkastara þessa heims.

Hér-&-Nú-gestir-dagur006

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sokkabandið 

 

 


Vondu mennirnir ... Gefins!

Lukastravelkit

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hallur Ingólfsson ...þarf eitthvað að ræða það? 

 Já við í Sokkabandinu höfum náð samkomulagi við tónlistarstjóra okkar og tónskáld Hall Ingólfsson, en hann er útsetjari, upptakari , textasmíðari , hljóðfæraleikari , bakraddasöngvari og allround gúddí gæi. Hann hefur sem sagt heimilað dreifingu á alnetinu á þeim lögum úr sýningunni sem hafa verið hljóðrituð með söng leikaranna og er hér í viðhengi við þennan póst.

 Kreppa en von um öflugri froðuvélar.

Það þykir víst ekki gott viðskiptavit að gefa vöru eða þjónustu án endurgjalds og næsta víst ömurleg viðskiptaáætlun. En kreppan starir á okkur sem opin gröf og sveiflur markaðarins senda fjölda spákaupmanna í dýpstu þunglyndisdali, þar sem þeir leigja sér sumarbústað sérstaklega hannaðan fyrir þunglynda spíruspekúlanta. En ágætu vinir óttist ekki þegar neyðin er stærst er hjálpin næst... fregnir herma að búið sé að panta öflugri froðuvél til landsins og er hún væntanleg hvað úr hverju.

Vondir menn og íþróttataska 

En á meðan við bíðum eftir hinni supersize-uðu froðuvél mæli ég með því að þið niðurhalið "Vondu Mennirnir" sem er í viðhengi við þetta innslag, framlag. Svo ef að lagið kitlar þá er hver að verða síðastur að sjá söngleikinn okkar .... 

 Sokkabandið


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Auðunn Blöndal ..tekinn?

Auddi leynigestur 6.12.07

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Giskin gestur 

Já hann er hrókur alls fagnaðar hann Auðunn Blöndal eða "Auddi" eins og flestir þekkja hann ef ekki bara öll þjóðin nema kannski ef að það er einhver íslendingur sem hefur verið herbergisfélagi Bin Ladens og haldið honum selskap í felum. Hann Auddi gerði sér lítið fyrir um daginn og vatt sér í BT músar búninginn eins og fleiri "celeb" hafa gert og var leynigesturinn í "Hér og Nú" á Litla Sviðinu í Borgó. Hann sést hér á myndinni hér að ofan ásamt hinum giskna gesti sem hlaut vegleg verðlaun frá Vörutorginu fyrir getspeki sína.

Machó mús

Fáir hafa borið BT músarbúninginn jafn karlmannlega eins og Auðunn gerði þetta frábæra kvöld. Var rómur manna að hann hefði gædd búninginn karlmannlegri orku og útgeislun.  Ekki var laust við að kvenþjóðin fengi smá hnykk í hnén við að berja heljarmennið augum. Það fór hins vegar vel á með vinningshafanum og Audda og eitt er víst einhverjar "guggur" í salnum hafi viljað vera í hans sporum. 

Dagur eða Davíð?

Nú í kvöld laugardagskvöld er sýning og hver veit hvaða "celeb" fer í músarhaminn. Kannski fyrrverandi forsætisráðherra okkar nýsextugur eða okkar eigin "ER" stjarna og borgarstjóri Dagur Bé? Hver veit ?

Sjáumst á litla sviðinu.. 

 Sokkabandið 


Nýtt vopn í baráttunni gegn hryðjuverkum



Leiðinlegt fólk er ljótt

Já það er hverju orði sannara en það er þó þannig að stundum dugar hressleikinn ekki einn til. Við erum misjafnlega af skapara okkar gerð og gengur misvel að verjast stöðugum árásum Elli kerlingar sem hefur jafnvel  meira hugarflug í sínum skæruhernaði gegn okkur en Alkaida eða alkaline eða hvað þeir heita þessir arabar sem ekki geta unað lýðræðisframþróuninni í austurlöndum. Hrukkur, hárlos, húðlitur dofnar, keppir birtast þar sem áður var stinnt hold, lifrarblettir. Þetta er bara hluti af vopnabúri þessa hryðjuverkamanns sem er Elli kerling. En auðvitað höfum við lýst yfir stríði gegn hennar hryðjuverkum , líst yfir stríði gegn þeim ótta sem fylgir því að vita að við erum hvergi óhult fyrir skæruárásum hennar. Það stríð hófs fyrir löngu, löngu áður en alkaline gaurarnir réðust á turnanna tvo.

 Von um betri vopn

Það er því með mikilli ánægju sem Sokkabandið getur kynnt enn eina nýjung í vopnabúri okkar. Margir hafa heyrt orðróm um þessa viðbót en ekki fengið staðfestingu fyrir tilvist þessa leynivopns.  Í myndbandinu hér að ofan er fjallað um endaþarmsaflitun. Hversu hvimleitt er það að þurfa að horfa upp á endaþarm sinn dökkna með árunum og þannig glata sínu upphaflega aðdráttarafli. En það er von og vegur þar sem fegurðarsérfræðingar hafa hannað þessa meðferð sem gerir þér kleift að yngja upp á þér þarminn. Hver vill ekki verða stoltur á ný og bera þarm sinn með stolti já ekki lengur súkkulaði heldur....vanilla

Sokkabandið

og hér og  Hér

má finna frekari upplýsingar.

 


Bandarískt beib böggað af bílstjórum

beonce

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Sleik fiction

Já það er skammt stórra högga á milli Tarantínó ný farinn að landi brott eftir að hafa pitchsað hugmynd að Degi borgarstjóra um kvikmyndaborgina "Rekkjuvík" og farið svo í sleik. Ekki við nefndan borgarstjóra heldur einhverja Reykvíska mær eða svo segir Séð og heyrt. Beyoncé sem ekki má rugla saman við Lenoncé vermdi lök á hóteli í Reykjanesbæ og hlaut sem kveðjugjöf keramik listgrip frá listamanni sem er systir hótelstjórans. 

Fór huldu höfði á heilli hæð 

Beyoncé fór leynt með dvöl sína hér á landi enda var einungis leigð ein hæð á hótelinu fyrir hana og fylgdarlið hennar. En það eru leigubílstjórar sem starfa í Reykjanesbæ taldir hafa ljóstrað upp um viðveru stjörnunar á hótelinu og lekið í fjölmiðla. 

Sokkabandið óska Beyoncé  til hamingju með keramiklistina og íslandsdvölina en þykir leitt að hún hafi ekki sett sig í samband við okkur og kíkt á sýningu og kannski brugðið sér í músarbúninginn.

 Sokkabandið


mbl.is Beyoncé á Hótel Keflavík í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband