15.1.2008 | 21:26
Vísindakirkjan...vísundakirkjan? Tom Cruise veit svarið...
Já við rákumst á þetta myndbrot þar sem Tom Cruise talar af hjartans einlægni um Vísindakirkjuna og lætur n geysa um nauðsyn þess að skapa "nýjan veruleika". Tom Cruise er margt merkilegur karakter og eflaust rekur einhverja minni til ummæla hans í sófanum hjá Opruh og fimleika þá sem hann tók í sama sófa. Öll hegðun hans þar var á sama orkustigi og íþróttaálfurinn ef að hann myndi sprauta sig með frúktósa beint í æð. Það lýsti Cruise líka því yfir að hann ætlaði að borða fylgjuna þegar hans ektakvinna hefði skilað henni af sér eftir fæðinguna. Hann uppskar þann vafasama heiður í kjölfarið að vera sá einstaklingur sem bandarískar konur vildu síst sænga með sem er skiljanlegt enda furðulegur forleikur að bjóða upp á kampavín og súkkulaðihúðaða fylgjubita. Kannski er það hluti af hinum "nýja veruleika" að snarla á fylgjum. En endilega látið ekki sögur um fylgjuát fæla ykkur frá því að hlýða á helsta talsmann vísindakirkjunnar.
Sokkabandið
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.1.2008 | 13:20
Bjórdrykkja gegn krabbameini?
Þýskir vísinda menn hafa fundið efnið Xanthohumol í bjór sem virðist geta unnið á ýmsum tegundum krabbameins. Sjá hér.
Sokkabandið
Vísindi og fræði | Breytt 19.1.2008 kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2008 | 18:33
Bandarískt beib böggað af bílstjórum
Sleik fiction
Já það er skammt stórra högga á milli Tarantínó ný farinn að landi brott eftir að hafa pitchsað hugmynd að Degi borgarstjóra um kvikmyndaborgina "Rekkjuvík" og farið svo í sleik. Ekki við nefndan borgarstjóra heldur einhverja Reykvíska mær eða svo segir Séð og heyrt. Beyoncé sem ekki má rugla saman við Lenoncé vermdi lök á hóteli í Reykjanesbæ og hlaut sem kveðjugjöf keramik listgrip frá listamanni sem er systir hótelstjórans.
Fór huldu höfði á heilli hæð
Beyoncé fór leynt með dvöl sína hér á landi enda var einungis leigð ein hæð á hótelinu fyrir hana og fylgdarlið hennar. En það eru leigubílstjórar sem starfa í Reykjanesbæ taldir hafa ljóstrað upp um viðveru stjörnunar á hótelinu og lekið í fjölmiðla.
Sokkabandið óska Beyoncé til hamingju með keramiklistina og íslandsdvölina en þykir leitt að hún hafi ekki sett sig í samband við okkur og kíkt á sýningu og kannski brugðið sér í músarbúninginn.
Sokkabandið
Beyoncé á Hótel Keflavík í nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 19.1.2008 kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.1.2008 | 16:59
Heilræði frá helköttuðum
Ef myndband birtist ekki þá vinsamlegast smellið á fyrirsögn
Spaugilegt | Breytt 19.1.2008 kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2008 | 16:58
Jesú kristur...Helgi Péturs..múham ....Krummi
Stuðmenn stundu..
Já Stuðmenn sungu um árið eitthvað í líkingu við þetta á "Sumar á Sýrlandi" ef að mig rekur rétt minni til. Nei Stuðmenn voru ekki að troða upp á Litla Sviðinu Borgarleikhúsinu en engu að síður var þar mikið stuð og menn ... og auðvitað konur líka síðastliðið föstudagskvöld á sýningu á Hér og Nú á Litla Sviðinu í Borgarleikhúsinu.
Krummi er kúl ...
Leynigestur kvöldsins var Krummi í Mínus og stóð hann sig með mikilli prýði og náði að skora mörg rokkprik helsti keppinautur hans gæti hugsanlega verið Rúnni Júll en hver veit hvað framtíðin ber í skauti sér eða í BT músarbúning. Við í Sokkabandinu kunnum Krumma miklar þakkir fyrir og hvetjum alla til þess að berja hann augum í Jesus Christ Superstar og merja hlustina með þrusuraust hans og leikbræðra og systra. Hver veit kannski verður eitthvað páskatilboð á Superstar. Síðasta kvöldmáltíðin og sjóv.
Sokkabandið
13.1.2008 | 09:11
Íslenskt vatn drukkið í Hér og Nú !
Leið Réttvísinnar
Já það eru stórfréttir að Paris Hilton drekki íslenskt vatn sérstaklega nú um stundir á þessum tímamótum sem hún stendur á. Paris hefur nýlokið við að afplána dóm sinn með fangelsisvist og víst er að íslenska vatnið mun eflaust veita henni styrk til þess að feta hinn þrönga og bugðótta stig réttvísinnar. Við í Söngleiknum Hér og Nú á Litla Sviði Borgarleikhússins drekkum eingöngu Íslenskt Vatn. Egils Kristall og því til sönnunar sést hér á myndinni að ofan hverjir drekka þann magnaða drykk. Á hverri sýningu gæða leikarar og áhorfendur sér á Egils Kristall í boði Ölgerðarinnar. Það er víst að þessi Kristalsdrykkja hefur eflaust átt stóran þátt í því að stjörnur þær sem koma í heimsókn til okkar og leikararnir í söngleiknum hefur tekist að feta veg réttvísinnar og ekki orðið leiksoppar glæpasamtaka og jafnvel endað sem burðardýr eiturlyfjasala. Sokkabandið segir "Takk Egill"
Paris Hilton drakk íslenskt vatn í grjótinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt 14.1.2008 kl. 15:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2008 | 15:43
Tjáðu þig...
Ef myndband birtist ekki þá vinsamlegast smellið á fyrirsögn
Sýning í kvöld og sunnudag ...
Sokkabandið
Menning og listir | Breytt 16.1.2008 kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.1.2008 | 14:57
Láttu ekki fötlun þína aftra þér.... New wheels on the block
Draumar munu rætast
Eins og flestir vita er Hér og Nú söngleikur og eitt laganna heitir "Draumar munu rætast" og má hlýða á það í tónlistarspilara hér á síðunni. En þessir listamenn sem koma fram í myndbandinu hér að ofan eru Norskir kollegar okkar og á sinn snildarlega hátt ná þeir skemmtilegum viðsnúningi á okkur og hugmynd okkar um poppstjörnur. Heja Norge
Sokkabandið
10.1.2008 | 11:02
Að vera opinskár ... og hress
Ef myndband birtist ekki þá vinsamlegast smellið á fyrirsögn
Menning og listir | Breytt 16.1.2008 kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2008 | 10:42
Geir Ólafs og Daddi slá í gegn á Hér og Nú!
ICE BLUE FOR YOU
Já hann minkar ekki stjörnufansinn á Hér og Nú í Leynigestsleiknum. Nú síðast hin góðkunni stórsöngvari og "krooner" Ice Blue AKA Geir Ólafs. En hann sést hér á mynd fyrir ofan ásamt vinningshafanum. Fregnir herma að það hafi farið vel á með þeim félögunum ...hver veit nema þeir hafi kíkt í kollu eftir sýninguna?
KIKNAÐI Í HNJÁNUM
Þá var það hinn landsþekkti gamanleikari Kjartan Guðjónsson sem kom sá og sigraði hug og hjörtu áhorfenda enda geðþekkur og hress. Á myndinni hér að ofan má sjá hann ásamt vinningshafa kvöldsins sem að eigin sögn segist ekki missa af þætti með "stelpunum" í þeirri von að berja Kjartan augum og var djúpt snortinn að fá að hitta hann í eigin persónu.
ÞORGRÍMUR EÐA ÞRÁIN?
Nú um næstu helgi verða tvær sýningar og hver veit nema að átrúnaðargoð þitt stigi á svið í dulargerfi ? Já enginn veit, nema við, hver mun klæðast BT músarbúningnum næstu helgi. Næstu sýningar eru föstudaginn 11 janúar og sunnudaginn 13 janúar á Litla Sviði Borgarleikhússins. Láttu sjá þig á Litla sviðinu.
Sokkabandið
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)