10.1.2008 | 10:42
Geir Ólafs og Daddi slá í gegn á Hér og Nú!
ICE BLUE FOR YOU
Já hann minkar ekki stjörnufansinn á Hér og Nú í Leynigestsleiknum. Nú síðast hin góðkunni stórsöngvari og "krooner" Ice Blue AKA Geir Ólafs. En hann sést hér á mynd fyrir ofan ásamt vinningshafanum. Fregnir herma að það hafi farið vel á með þeim félögunum ...hver veit nema þeir hafi kíkt í kollu eftir sýninguna?
KIKNAÐI Í HNJÁNUM
Þá var það hinn landsþekkti gamanleikari Kjartan Guðjónsson sem kom sá og sigraði hug og hjörtu áhorfenda enda geðþekkur og hress. Á myndinni hér að ofan má sjá hann ásamt vinningshafa kvöldsins sem að eigin sögn segist ekki missa af þætti með "stelpunum" í þeirri von að berja Kjartan augum og var djúpt snortinn að fá að hitta hann í eigin persónu.
ÞORGRÍMUR EÐA ÞRÁIN?
Nú um næstu helgi verða tvær sýningar og hver veit nema að átrúnaðargoð þitt stigi á svið í dulargerfi ? Já enginn veit, nema við, hver mun klæðast BT músarbúningnum næstu helgi. Næstu sýningar eru föstudaginn 11 janúar og sunnudaginn 13 janúar á Litla Sviði Borgarleikhússins. Láttu sjá þig á Litla sviðinu.
Sokkabandið
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:43 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.